Uppstigningadagur í Sopot

6.-9. maí 2027

Sætin eru takmörkuð og tilboðið gildir á meðan sæti eru til – fyrstur kemur, fyrstur fær!

Pólverjar hafa sótt í heilsulindir og fallegt umhverfi Sopot allt frá 16. öld og nú hafa ferðamenn víða að einnig uppgötvað þessa litlu strandperlu.

Sopot er um 40.000 manna bær við Eystrasalt og hluti af Þríborginni ásamt Gdańsk og Gdynia. Bærinn er þekktur fyrir fallegar strendur, heilsulindir og hina frægu trébryggju sem teygir sig rúma 500 metra út á Gdańsk-flóa. Bryggjan var opnuð árið 1827 og er í dag eitt helsta kennileiti bæjarins.
Sopot er einnig mikill tónlistarbær. Þar hefur alþjóðlega söngkeppnin Sopot Festival verið haldin frá árinu 1961 og á sviðinu hafa meðal annars komið fram stórstjörnur á borð við Whitney Houston, Tinu Turner og Lionel Richie. Hér blandast því saman strandlíf, spa-stemning, saga og skemmtileg tónlistarmenning.

Hvað er hægt að gera í Sopot

Röltu út á hina frægu trébryggju og njóttu útsýnisins

Dekraðu við þig í spa og heilsulind

Prófaðu notaleg kaffihús og góða veitingastaði

Kíktu á lífið á Monte Cassino-göngugötunni.

Slappaðu af á gullinni sandströndinni.

Skelltu þér í kokteil eða happy hour við ströndina.

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Icelandair

23kg innritaður farangur & 10kg handfarangur

Flogið út

Flogið út frá Keflavík kl.07:20  
(bein flug, ~3 klst 35 mín)

Flogið heim

Flogið heim frá Gdansk kl.13:50 
(bein flug, ~3 klst 35 mín)

Gisting

3 nætur á hóteli með morgunmat í Sopot

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli

 

Fararstjórn

Skemmtilegur Tripical fararstjóri

*Hægt að bóka gegn gjaldi

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja fræðsluferðir hópa!

Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!

Great Polonia Umi Hotel Sopot

***

Great Polonia Umi Hotel Sopot er nýlegt, stílhreint og sérlega vel heppnað 3-stjörnu borgarhótel staðsett við Aleja Niepodległości í strandbænum Sopot í Póllandi. Hótelið býður upp á ferska og mínímalíska hönnun, mikinn hreinleika og framúrskarandi þjónustu.

Hótelið fær heildareinkunina 9,1 og 8,8 fyrir staðsetningu á booking.com

129.990 kr.

á mann í tvíbýli

164.990 kr.

á mann í einbýli

Hotel Haffner Resort & Spa

*****

Hotel Haffner Resort & Spa er glæsilegt fimm stjörnu hótel aðeins um 250 metrum frá ströndinni. Á hótelinu eru þægileg herbergi, innisundlaug, heilsulind, sauna og líkamsrækt.

Hótelið fær heildareinkunina 8,9 og 9,3 fyrir staðsetningu á booking.com

—

Tripical mat

Frábær kostur fyrir þá sem vilja vandað hótel, góða heilsulind og rólegt umhverfi í göngufæri við ströndina og miðbæ Sopot.

139.990 kr.

á mann í tvíbýli

166.990 kr.

á mann í einbýli

Focus Hotel Premium Sopot

***

Focus Hotel Premium Sopot er stílhreint og þægilegt hótel á rólegum stað, í göngufæri við miðbæinn, lestarstöðina og ströndina. Herbergin eru rúmgóð og vel búin og morgunverðurinn fær mikið lof.

Á Booking.com fær hótelið heildareinkunn 9,0 og 9,4 fyrir staðsetningu

—

Tripical mat

Góður kostur fyrir þá sem vilja rólegt og vandað hótel í þægilegri göngufjarlægð frá lífinu í Sopot.

149.990 kr.

á mann í tvíbýli

186.990 kr.

á mann í einbýli

Rezydent Hotel Sopot - MGallery Collection

*****

Rezydent Hotel Sopot – MGallery Collection er glæsilegt fimm stjörnu hótel í hjarta Sopot, rétt við Monte Cassino-göngugötuna og í stuttri göngu frá ströndinni og bryggjunni. Hótelið sameinar klassískan arkitektúr og fágaða hönnun og býður upp á veitingastað og heilsulind.

Á Booking.com fær hótelið heildareinkunn 9,0 og 9,5 fyrir staðsetningu.

—

Tripical mat

Frábær kostur fyrir þá sem vilja glæsilegt hótel á einum besta staðnum í Sopot, stutt frá veitingastöðum, verslunum og ströndinni.engi.
174.990 kr.

á mann í tvíbýli

229.990 kr.

á mann í einbýli

Sofitel Grand Sopot

****

Sofitel Grand Sopot er sögufrægt og glæsilegt fimm stjörnu hótel á einstökum stað við ströndina, rétt hjá bryggjunni og miðbæ Sopot. Á hótelinu eru fáguð herbergi, einkaströnd, innisundlaug, heilsulind og veitingastaður.

Hótelið fær heildareinkunina 9,0 og 9,8 fyrir staðsetningu á booking.com 

—

Tripical mat

Hér sefur maður ekki bara á góðu hóteli – maður dvelur í hluta af sögu Sopot. Glæsileiki, sjávarstemning og einstök staðsetning gera Sofitel Grand Sopot að einstaklega eftirminnilegu hóteli.
194.990 kr.

á mann í tvíbýli

259.990 kr.

á mann í einbýli

Tilboðið miðast við 10–30 manns.

Ef hópurinn er stærri skoðum við möguleikann á fleiri flugsætum og gistingu, en verð fyrir aukafarþega gæti breyst.

Ef valið hótel er ekki í boði finnum við sambærilegt eða betra hótel á svipuðum stað, með samþykki ykkar.

Ferðin telst formlega staðfest þegar staðfestingargjald hefur verið greitt.

Umsagnir fyrri hópa

Hjá Tripical snýst þetta ekki bara um að komast á áfangastað – heldur að skapa ferð sem hópurinn nýtur frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.

Við erum ótrúlega stolt af fallegu orðunum og frábæru umsögnunum sem við höfum fengið frá hópunum okkar.